Sigga Sæta
Dagsetning
22. mars 2010
Kem á klakann eftir
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 821 dögum
13.02.2008 14:47:38 / siggabloggar

Komin með ógeð á blog.central

Ég er farin af þessu helvítis blog.central böggi og komin yfir á bloggar

síðan er  www.supersigga.bloggar.is




» 0 hafa sagt sína skoðun

11.02.2008 13:36:49 / siggabloggar

Köben beibí

Ég er búin að vera að reyna að blogga en það hefur bara ekki gengið upp, serverinn hjá blogcentral hefur verið með einhver leiðindi.

Ég og Linda vorum með bolludag á þriðjudaginn :)  hvorug okkar hefur gert vatnsdeigsbollur áður, ég meina ég hef horft á mömmu gera þetta en það er ekki eins...en þetta tókst ekkert smá vel hjá okkur...greinilegt að við getum gert ALLT :D

Á laugardaginn fórum ég, Maggi, Hanus, Linda og Elmar til Esbjerg. Fórum á sýningu sem heitir Erotic World....ég hef bara aldrei séð jafn mikið af fullorðinsleikföngum undir sama þaki :lol:  Tókum langan tíma í að skoða þetta allt, svo fórum við út að borða á einhverjum mexikósum stað held ég. Maturinn var frekar sterkur...og á leiðinni heim þá ropaði ég hahahaha og strákarnir þurftu að opna alla glugga því að lyktin var svo ógeðsleg hehehehe....ég hef aldrei náð að vera með vonda ropulykt áður.

Ég er ekki búin að vera dugleg að taka myndir þannig að ég hef ekkert verið að bæta við.

En ég er að fara til Köben eftir 3 daga að hitta mömmu og mína yndislegu systir :D lofa að vera dugleg að taka myndir!

Later... 


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.02.2008 13:14:50 / siggabloggar

Veeskaan mín er hoorfinn!

Ég veit ekki hvernig en ég er búin að týna veskinu mínu. Búin að fara yfir allt í kollunum á mér aftur og aftur....notaði það í Netto, fór heim til Lindu, heim til Hvata, niðrí bæ, þar þurfi ég ekki að nota það og svo heim! Búin að snúa öllu við heima hjá mér, búið að leita í báðum bílunum, heima hjá Lindu og Hvata en enginn hefur séð það :cry: Mér er sama um peninginn sem er í því...eitthvað um 300 kall danskar, en debetkortið mitt sem er ónothæft ef að maður hefur ekki PIN númerið sem er vel geymt í mínum kolli, ökuskírteinið og "sjúkrakortið" þetta gula með nýju kennitölunni minni og heimilsfanginu mínu. Pirrr!!

En já ég fór í skemmtilegt party til Hvata á föstudaginn og svo í bæinn...smá drukkin. Svo í gær átti að vera öskudagsball á Kollegi-inu hjá Lindu og Elmari en því var aflýst af því að það var ekki nóg rafmagn:!:8| Spes!! Þannig að við ákváðum bara að við myndum hittast hérna hjá mér í staðin, og það var alveg ágætt...Guitar Hero og pizza :D svo var kíkt stutt í bæinn.

Ég er búin að setja inn myndir síðan um helgina....ef einhver er ósáttur með einhverja mynd af sér á síðunni minni þá er honum/henni frjálst að láta mig vita og þeim myndum verður umsvifalaust kippt út!

Later...


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.01.2008 19:23:52 / siggabloggar

Ekki I-pod

Já ég fór til Þýskalands með Lindu á þriðjudaginn og keypti mér SanDisk frá Sansa, það er EKKI I-pod ;) virkar samt voða svipað...Sansinn er 4 GB og geymir tónlist, myndir og video, hann er líka með útvarpi og upptökutæki...þannig að ég get tekið beint uppúr útvarpinu og tekið upp það sem að fólk er að segja :D Hann kostaði ekki nema 89 evrur...venjulegur I-pod er á rúmar 120 evrur. Ég er allaveganna sátt, núna get ég farið út að labba með tónlist í eyrunum. I-podinn minn nebbla dó í sama 7-Up slysi og myndavélin "slasaðist" í síðasta sumar ;)

Ég fæ ekki að fara inn í aðgangskúrsinn núna, er of sein. Ég sendi inn einkunnirnar í gær og fæ að vita á mánudaginn hvort að ég sé búin með nógu mikla stærfræði til að geta gengið beint inn í námið á ágúst...ef ekki þá þarf ég kannski að fara í aðgangskúrsinn í heilar tvær annir BARA í stærðfræði...alveg yndislegt kerfi!!! En þetta þýðir að núna fer ég að leita mér að vinnu fyrir alvöru og fer í dönskunám með.

Á morgun er partý hjá Hvata og á laugardaginn er Öskudagsball í kollegi-inu hjá Lindu...þannig að þá ættu nokkrar myndir af fara að koma inn :D

Á fimmtudaginn eftir 2 vikur er ég að fara til Köben, búin að minnast á það áður og mun minnast á það aftur :D  ég ræð bara ekkert við þetta, ég hlakka svo til :D

Later...


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.01.2008 14:32:05 / siggabloggar

Sól og gott veður...

Ekkert smá gott veður í dag...svo gott að það dró mig út að hjóla í hálftíma :D

Ekkert mikið að gerast hérna núna, var reyndar þorrablót hjá íslendingafélaginu....mættu um 90 manns! Mikið stuð, farið í leiki og dansað...ég hefði nú getað verið hressari, var því miður ennþá soldið þunn frá því kvöldið áður :lol:  Ég fékk fyrsta vinninginn í "lottóinu" þarna hehehe, mitt númer gaf mér glaðning frá Bláa Lóninu, bodylotion og bodyscrub og eitthvað shower gel, þetta er reyndar allt í skottinu hjá henni Lindu ennþá :D Þór vann bland í Hagkaupspoka og Hvati vann flugerð fyrir tvo.

Linda setti krullur í hárið á mér og mér fannst ég voða fín 8)  hún gerði reyndar hárið á Jórunni líka sem var ekkert smá flott!!!

Ég ákvað að henda inn myndum í albúm sem heitir Bland í DK, þar eru myndir sem eru bara teknar hingað og þangað síðan um áramótin...

Later... 


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.01.2008 00:39:30 / siggabloggar

Heath Ledger...

Ég bara trúi því ekki að heiti folinn hann Heath Ledger sé dáinn :| Mér finnst það ekkert smá sorglegt...ég sem átti eftir að sænga hjá honum! En svona er lífið nú ósanngjarnt....

Ég er núna að vesenast í því að leyta mér að vinnu...er ekki að gera mikið þessa dagana, er svoldið reið og sár útí lífið ákkúrat núna, ekki aðeins útaf heita folanum hehehehe  heldur finnst það erfitt þegar að það sem að maður er búinn að plana, stefna að og hlakka til er bara rifið sí svona úr höndunum á manni.

En uppgjöf klæðir mig illa, þannig að ég hef ákveðið að pakka ekki saman og koma heim með skottið á milli lappanna. Ég snýti mér bara og geri mitt besta í að læra þetta hrognamál, vinn mér inn smá pening og fer aftur í skóla í haust...en örugglega ekki í hjúkkuskólann, ætla að ath önnur svið.

Ég tel niður dagana í Köbenferðina, get ekki beðið eftir því að hitta Írisi og mömmu :!::D

Later... 


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.01.2008 20:57:07 / siggabloggar

Enn pínu áttavillt...

Ég hef tekið þá ákvörðun að fara ekki í prófið. Það skiptir engu máli hvort ég nái prófinu eða ekki, ég þarf alltaf að byrja aftur á fyrstu önn.  Ég er búin að sætt mig við það að fara að vinna og fer í það strax á morgun.

Ég fór með strákunum á stripp síðasta fimmtudag...ég setti inn myndir af því og þið sem að viljið ekki sjá unga stúlku fækka fötum fyrir framan hungraða drengi þá mæli ég ekki með að þið skoðið albúmið.

Later... 


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.01.2008 17:05:38 / siggabloggar

Bömmer!!

Ég var á fundi í dag með skólastjóranum mínu sem er þekkt fyrir að vera alger pussa:!: Hún sagði mér að danskan mín væri það léleg að ég hefði ekkert erindi á aðra önn. Var síðan eitthvað treg á það að hleypa mér í prófið, en sagði síðan að það væri ekkert nema sanngjarnt þar sem að ég er búin að sitja alla önnina. Núna er búið að sparka gjörsamlega allt loft úr mér og ég hef engan áhuga á því að læra fyrir þetta blessaða próf:!:

Hinn skólinn tekur bara inn nemendur í mastersnám núna í febrúar, þau eru samt að líta á þetta fyrir mig og það kemur í ljós hvort að ég fái að sitja einhverja kúrsa fram á sumar.

Ef það gengur ekki þá fer ég að vinna og með dönskunám "on the side" sem er kannski ekkert of vitlaust...þarf að koma dönskunni í eitthvað form:!:

Ég ætla að eyða þessum degi í þunglyndi og fýlu...

Later...


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 14:23:09 / siggabloggar

Hetjudáðir Sigríðar!

Ég fór aftur í nálastungur í dag, og það var FOKK vont:!: En ég endist lengur núna heldur en síðast. Svo var hún alltaf að koma á milli sjúklinga og snúa þessum 5 nálunum, ekkert smá vont. Það var ein í upphandlegg/öxl og jeminn eini, ég gat ekki einusinni hreyft fingurna þá meiddi ég mig...en mér finnst ég vera hetja því að ég ákvað að fara aftur á föstudaginn :haha:

Í gær þá fékk hann Maggi minn Guð þá hugmynd að ég ætti að prófa að skrúfa myndavélina mína í sundur og þrífa hana. Þið sem vitið ekki um hvað málið er, þá lenti myndavélin í 7-Up slysi síðasta sumar og hefur haft sína hentusemi eftir það, slekkur á sér þegar að hún vill og er alls ekki alltaf í stuði til að taka myndir. Ég fór semsagt vopnuð rökum eyrnapinnum og skrúfjárni og reif kvikindið eins mikið í sundur og ég gat, sem var því miður ekki mikið. Það tók ekki langan tíma fyrir mig að átti mig á því að ég var að gera tóma vitleysu og ákvað að loka henni aftur. Þegar að ég var að loka henni þá lokaði ég lokinu sem er hjá batterýinu og minniskortinu og það festist:!: Ungfrú Óþolinmóð Pálmadóttir réðst á lokið með skrúfjárninu og spennti upp lokið og ALLIR litlu smáhlutirnir sem láta lokið virka flugu í allar áttir 8|

Nú var sko kominn tími á klukkutíma pásu áður en ég myndi kveikja í helvítis vélinni:!: Svo fór ég þreif alla litlu hlutina og eyddi rúmum klukkutíma í að spá hvernig þetta ætti nú allt að smella saman. Fattaði síðan að við hliðina á minniskortinu er pínulítill rofi, ef að ég loka lokinu þá rennur það á rofann og þá er hægt að nota vélina 8) Mér tókst einhvernveginn að koma öllu smádraslinu saman, setja það í lokið og halda því þar á meðan ég skrúfaði litlu skrúfuna í sem heldur þessu öllu saman. Ekk nóg með það ég mér hafi tekist að setja þetta allt saman aftur en þá er ég búin að gera við myndavélina :haha: Get hrist hana eins og ég vil og það slokknar EKKI á henni:!::!:

Ég ætla að játa það að ég er ekkert smá stolt af mér, ég er greinilega mörgum hæfileikum gædd...get gert við myndavélar, skeint eldra fólki, sett saman skápa, flutt ein til útlanda og skipt um ljósaperu alveg sjálf :lol:

En nú ætla ég að snúa mér aftur að lærdómnum, ekki nema 11 dagar í próf:!:

Later...


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 13:40:45 / siggabloggar

Nálar

Ég fór til læknis í dag útaf öxlinni eftir að ég flaug af hjólinu mínu, hún vildi endilega prófa að stinga mig með nálum :S Jújú ok ég er til í að prófa hvað sem er til að fá einhvern nætursvefn:!: Ég fékk 5 nálar og jeminn ég þurfti bara að æla eftir rúmar 5 mínútur 8| En ég fer aftur á mánudaginn og kannski líka næsta fimmtudag. Ég þarf á því að halda að vera góð svo að ég geti setið og lesið fyrir prófið næstu tvær vikurnar. Fór líka í sjúkranudd í dag þannig að þetta fer vonandi að skána. Ég er orðin svo stressuð að mig er farið að dreyma fucked up drauma, 42 dáin börn og sýktir dauðir hundar sem hafa bitið fólk og það við dauðans dyr. Vakna upp í sjokki þar sem að þetta eru aðstæður sem að ég hef enga stjórn:!:

Er að spá í að kíkja aðeins út á laugardaginn og svo verður ekki farið á tjúttið fyrr en 26 jan þegar að Þorrablótið verður hjá Íslendingafélaginu.

Svo fer ég til Köben 14-18 feb af því að Íris er að fara að keppa:!:  Hlakka ekkert smá til :haha:

Later... 


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.01.2008 10:18:15 / siggabloggar

Vangaveltur

Fyrir mér er þetta ekki lengur spurning um hvernig mér gengur í skólanum, þetta er spurning um hvernig ég á að fara að því að fúnkera hérna í dönsku samfélagi. Mér er orðið slétt sama um skólann, hvort ég nái eða ekki.

Mig langar ekki að pakka saman og fara heim og læra hjúkkuna á íslensku. Mér finnst ég þurfa að skipta um vettvang áður en ég gefst upp á því að vera hérna alein og skilningslaus. Ég get ekki hert róðurinn þar sem að ég hef engan veginn áhuga á því sem að ég er að gera núna.

Ef að maður skilur hvað er að gerast í kringum sig þá er allt þess virði og vandamálin leysast auðveldlega, ég skil ekkert í því sem er að gerast, mæti hvorki skilningi né hjálpsemi í þessum danska hjúkrunarskóla.

Í stað þess að gefast upp á því að vera alein í heiminum þá ætla ég að finna mér aðra leið til að þrífast hérna. Ef það þýðir að ég þurfi að skipta um skóla til að læra eitthvað sem ég veit ekki hvort ég hef áhuga á en er á tungumáli sem að ég skil vel, then so be it:!: 

Later... 


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.01.2008 11:38:21 / siggabloggar

Blautt veður

Veðrið hérna er eins og tíbískt íslenskt veður, slabb snjókoma, blautt en samt ekkert of kalt.

Ég á eina viku eftir í skólanum svo er ég komin í upplestrarfrí....veit ekki alveg hvað ég á að gera. Gerði mér grein fyrir því um daginn að ég tók alltof stóran bita uppí mig. Það er eiginlega vonlaust að koma til DK með ekkert nema stúdentspróf í dönsku og ætla að byrja strax í læknisfræðilegu námi sem er eingöngu á þessu hrognamáli:!: Prófið er 25 jan. Ef að ég næ ekki þá má ég samt halda áfram á annarri önn....ég veit samt ekki hvort að ég eigi ekki bara að fara í SDU sem er annar háskóli hérna og ath með verkfræði. Hef aldrei spáð hvort að ég eigi eitthvað heima þar, en afhverju ekki prófa sig áfram?

Ég hélt að ég hefði áhuga á sálfræði en nennti aldrei að leggja mig eitthvað fram við að læra heima, er í sama bobba í hjúkkunni...en það gæti líka verið af því að ég skil ekki tungumálið. Í hinum skólanum þá fæ ég allaveganna að læra á ensku og get beðið um aðstoð og útskýringar og fæ það, eitthvað annað en í hjúkkuskólanum þar sem að mér er bara svarað á dönsku af því að ég á bara að læra hana...:(

Hausinn á mér er á þeytingi og ég veit ekkert hvar ég á heima....

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ ÍRIS MÍN!!!

Later...


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.01.2008 11:55:23 / siggabloggar

Áááiiii...!!!

Klaufinn ég er mættur aftur...:( ég var að hjóla til læknisins í gær til að fá pilluna mína, þegar að ég ætlaði uppá kantinn þá neitaði hjólið mitt að fara alla leið uppá gangstéttina þannig að mín flaug í stéttina...beint fyrir framan gamla kellu:!: Ég er með græna kúlu á sköflungnum, reif vettlingana mína, skall með hausinn í stéttina, thank god fyrir 66°Norður húfuna mína, og lenti illa á hægri öxlinni...:!:

Mér líður eins og trukkur hafi keyrt á mig:!: :(  langaði ekkert voðalega að bæta þessu við alla bakverkina sem að ég hef fyrir

Janúar er ekki minn mánuður í umferðinni....fyrir 8 árum keyrði ég á strætó, í fyrra keyrði ég aftan á annan bíl og núna fékk ég flugferð....ég ætla bara að labba það sem eftir er af janúar:!:

 Later...


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.12.2007 14:37:59 / siggabloggar

Gleðilegt nýtt ár!!!

Oh vá ég er komin aftur til DK og það er ekkert smá skrítið....:!:

sko, ég skal bara byrja á byrjuninni....

Ég fór til Íslands með honum Magga vini mínum með einkaþotu, hann náði að redda þessu fyrir okkur þar sem að hann vinnur uppá flugvelli og er að læra að fljúga. Allt gyllt og í leðri, enginn flugvöllur og enginn tollur...bara beint frá Sønderborg og inní flugskýli á Keflavíkurflugvelli, BARA lúxus 8) væri til í að ferðast svona bara alltaf ;)

Enginn vissi að ég væri að koma þar sem að ég kom 2 dögum of snemma, náði í rassgatið á Elínu áður en hún fór til Tenirife eða hvað sem að það heitir...hún fékk vægt sjokk við að sjá mig í dyragættinni :haha: Mamma setti líka upp fyndinn svip, Guðrún kallaði mig beyglu og sakaði mig um að ljúga að henni og Ólöf frænka brosti út að eyrum þegar að ég náði henni í náttfötunum :lol: Ekkert smá gaman að koma öllum svona á óvart :D

Mér leið nú bara eins og drottningu þegar að ég kom heim, fékk sérherbergi með PS tölvu og sjónvarpi þar sem að Mummi er í Argentínu, Queen size rúm, kreditkortið hennar mömmu og aðgang að bílunum þegar að ég vildi...takk kærlega fyrir mig mamma og já bara allir. Ég átti alveg hreint yndislegan tíma á Íslandi....og ekki skemmdi fyrir að fá svona falleg hvít jól :haha:

28 des héldum við Stína uppá 50 ára afmælið okkar saman, gekk virkilega vel, góð mæting og frábær stemmning...hitti stelpu inná klósetti sem spurði mig hvort að ég væri ekki Sigga í Sønderborg, jú það stemmir. Þá sagði hún mér að hún læsi oft bloggið mitt 8| frekar fyndið! Hún bjó víst hérna og les bloggin hjá þeim sem að hún þekkir héðan og svo bætast inn nýjir linkar hjá nýja fólkinu og ég er víst aktíf í blogginu og myndunum :lol: Gaman að heyra það...!

Ferðin aftur til DK gekk ekkert voða vel en varð að ágætis ævintýri í staðin. Veðrið hentaði ekki til flugs þannig að við þurftum að bíða uppá velli í nokkra tíma. Flugið átti að vera kl 14.15 en fórum ekki í loftið fyrr en um 19.00. Vorum komin til Köben um 11 hálf 12 og vorum nottla löngu búin að missa af tengifluginu til Sønderborg :( við hefðum getað náð lestinni rétt eftir miðnætti og verið þá komin hingað um hálf 5 og þá þurft að taka leigubíla heim af lestastöðinni....En í staðinn tókum við bara 2 bílaleigubíla, enda vorum við 9 saman og ég var komin í rúmið mitt klukkan hálf fjögur :haha:

Í kvöld verður matur hjá Elmari og Lindu og svo verður það annaðhvort bærinn eða partý, eða kannski bara bæði ;) Verður skrítið að vera án fjölskyldunnar um áramótin.

Þegar að ég kom heim þá fannst mér ég aldrei hafa farið til Danmerkur, ekkert var breytt. Og núna þegar að ég kom til DK þá fannst mér ég aldrei hafa farið til Íslands....furðulegt!

Ég fann leigjendur :haha: Par sem á von á barni núna í janúar, þau voru svo ánægð með íbúðina og hafa plan. Ef að þau hætta saman þá efast ég um að hún flytji þar sem að íbúðin er svo hentug fyrir börn, jarðhæð og garður :) Vona bara að þetta gangi betur upp núna en með síðasta leigjenda.

Ég er búin að henda inn myndum, tvö albúm :haha: Svaka dugleg...takk fyrir lánið á myndavélinni Íris...kiss kiss ;)

Later...


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.12.2007 16:10:13 / siggabloggar

Heim

Ég er komin heim...ég kom á fimmtudaginn 20 des :D kom með Magga í einkaþotu, leður og gyllt 8) set inn myndir seinna.

Later...


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Klukkan
Flutti til Sønderborg...
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 733852 dögum
RSS tengill